Halldóra Björg | Förðunarfræðingur
Um mig
Ég er útskrifaður förðunarfræðingur úr MakeUp Studio Hörpu Kára þar sem ég fékk diplómu haustið 2023 og hafði verið í starfsnámi með skólanum. Árið 2024 fluttist ég til Þýskalands að læra Tísku-Markaðsfræði við BSP í Berlín og var þar að farða á eigin vegum ásamt því að vera verktaki fyrir stofuna Nina Klein.

Undanfarin ár hef ég unnið mjög fjölbreytt en hef ég helst verið í myndat0kum fyrir auglýsingar, tónlistarmyndböndum og sjónvarpi. Kúnnar yfir árin hafa verið m.a
- Húrra Reykjavík
- Happy Hydrate
- Rúv
- Lidl
- Flaconi
- Metta Sport
- Hverfið
- Berlin Fashion Week
Ég sérhæfi mig í að búa til náttúrulegar en öðruvísi farðanir sem einblína á einstaka eiginleika þeirra manneskju sem situr í stólnum hjá mér.
Nálgun mín á förðun er að leggja áherslu á náttúrulega fegurð og krydda það sem nú þegar er með mínu eigin handbragði.
Áhugi minn liggur sem mest í tísku förðun og sérstakri sköpunargleði innan förðunarinnar en einnig nýt ég þess að taka að mér önnur verkefni sem snúast að allt öðru. Markmiðið mitt mun alltaf vera það að skapa einstaka upplifun og góða líðan fyrir kúnnann minn og skilja við hann ánægðan.
Ég vinn náið með viðskiptavinum mínum til að geta skilið sýn þeirra almennilega og koma henni sem best til skila.
Góð samskipti eru lykilatriði og með þeim er fyrst hægt að skapa fallega förðun fyrir hvaða tilefni sem er. Ef það eru einhverjar spurningar sem koma upp er alltaf hægt að senda mér email eða skilaboð á instagram eða í gegnum heimasíðuna.
Sjáumst;)
